Minning Songtext
Liljublóm sem að leit sólu mót
Á lífsins morgni var í burtu hrifið slitið óvænt upp af sinni rót
Ekkert finnst þar síðan nema grjót

Aftanstund og örlítill þeyr
Í eyra mér er hvíslað dimmum rómi:
Lætur eftir sig, það líf, sem deyr lítið skarð í hópinn, ekki meir.

Hjálpar alltaf að
Eiga í sínum hjartastað ljóselska minning ljúfa

Sorgin er ein á yfirferð
Ótti af henni mannfólkinu stendur hún er bæði köld og viðsjárverð og velur ekki neina sáttagerð

Liljublóm sem að leit sólu mót
Á lífsins morgni var í burtu hrifið slitið óvænt upp af sinni rót
Ekkert finnst þar síðan nema grjót

Hjálpar alltaf að
Eiga í sínum hjartastað ljóselska minning ljúfa