Ásgeir Trausti

Glæður
Heita lífsins loga Leggur yfir fjöllin dimm og grá Spenna skýjaboga Sveipaða í ævaforna þrá Í þögninni þú bíður eftir vori Og brennur þögull inn í nýjan dag Bjartar glæður brjóta leið Úr brúnum tindanna Flæða um kaldan mel og úfið hjarn Er gekkstu um sem barn Veistu elsku vinur Veröldin er bæði björt og hlý Er klettaborgin hrynur Hamingjan mun finna þig á ný Í þögninni þú biður eftir vori Og brennur þögull inn í nýjan dag Bjartar glæður brjóta leið Úr brúnum tindanna Flæða um kaldan mel og úfið hjarn Er gekkstu um sem barn Aus Songtexte Mania