Ásgeir Trausti

Minning
Liljublóm sem að leit sólu mót Á lífsins morgni var í burtu hrifið slitið óvænt upp af sinni rót Ekkert finnst þar síðan nema grjót Aftanstund og örlítill þeyr Í eyra mér er hvíslað dimmum rómi: Lætur eftir sig, það líf, sem deyr lítið skarð í hópinn, ekki meir. Hjálpar alltaf að Eiga í sínum hjartastað ljóselska minning ljúfa Sorgin er ein á yfirferð Ótti af henni mannfólkinu stendur hún er bæði köld og viðsjárverð og velur ekki neina sáttagerð Liljublóm sem að leit sólu mót Á lífsins morgni var í burtu hrifið slitið óvænt upp af sinni rót Ekkert finnst þar síðan nema grjót Hjálpar alltaf að Eiga í sínum hjartastað ljóselska minning ljúfa Aus Songtexte Mania